Stórskemmtileg safnaraútgáfa af hinu sívinsæla Monopoly þar sem leikmenn leika einhvern af hinum sérvitru vinum með því að velja sér peð sem vísar í persónurnar. Þeir keppast síðan um að safna sér auð en heimsækja í leiðinni eftirminnileg atriði úr þáttunum Friends.