Skapandi þrautaspil með formum.
Þrautarspil þar sem þú reynir að raða fimm formum þannig að þau búi til samhverfan múrvegg eins og spjöldin sýna. Brick by Brick þjálfar rýmisvitund og útsjónarsemi. Þrautaspilið kom fyrst út árið 1990 og hefur verið geysivinsælt alla tíð síðan. Þetta þrautaspil getur verið mjög ögrandi en er stórskemmtilegt! Ef þú lendir í vandræðum þá getur þú alltaf skoðað vísbendingar og lausnir sem er að finna aftan á spjöldunum.