Flottur Pokémon safnpakki með Eternatus í mismunandi myndum í forgrunni. Samkvæmt goðsögnum er Eternatus aflið á bak við Dynamax fyrirbrigðið á Galar svæðinu. Pakkinn inniheldur bæði glansspil með Eternatus V og Eternatus VMAX sem hægt er að spila með, auk safnspils með Eternamax mynd þessa öfluga Pokémona. Einnig má finna nælu og 6 booster pakka til að styrkja stokkinn þinn.



